Vatnsverk við Grund 2024

Vatnið er eitt af frumefnum jarðar síkvikt í sífeldri hringrás í tíma og rúmi. Það sprettur fram úr könnu af forn grískum uppruna  sem tengir daglegt líf okkar í þúsundir ára, seitlar um stokka og steina, myndar ljósbrot, líður hjá uns það hverfur í hringiðu af snúningi jarðar. Hefst aftur á nýjan leik og fellur á öðrum stað og annarri stundu.

Slökkvistöðin desember 2022

Myndir frá sýningu í Slökkvistöðinni i Gufunesi sem opnuð var á aðventunni 2022. Vegna ófærðar og kulda lauk henni fyrr en ætlað var. Slökkvistöðin er frábær sýningarsalur í bogadregnu ílöngu húsi, hvítmáluð í hólf og gólf. Hún er í umsjón ungra arkitekta og hönnuða sem eru með vinnustofu á staðnum.